Orðið hams merkir ‘hamur, húð’ en einnig ‘geðslag, yfirbragð’. Orðasambandið að vera/verða heitt í hamsi er notað um það er einhverjum hleypur kapp í kinn, einhver verður æstur yfir einhverju. Dæmi í ritmálssafni Orðabókar Háskólans um að verða heitt í hamsi eru frá fyrri hluta 20. aldar og sama er að segja um sam...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svo:Hvað eru hamsar í mörfloti og tólg? Spurning sem vaknaði í skötuveislu ársins.
Nafnorðið hams ‘hamur, húð’ er í fleirtölu hamsar og notað um brúna bita sem verða eftir þegar mör er bræddur. Annað orð yfir sama er skræður. Margir kjósa að hafa þessa brúnu bita í viðbitinu me...
Upprunalegu spurningarnar hljóðuðu svona:Hverjar eru helstu orsakir vöggudauða?Hvernig má koma í veg fyrir vöggudauða?
Vöggudauði hefur verið skilgreindur sem skyndilegur, óvæntur og óútskýranlegur dauði heilbrigðs ungbarns á fyrsta ári, oftast við tveggja til fjögurra mánaða aldur. Tíðni vöggudauða á Íslandi er ...
Spurningin hljóðaði upphaflega svona:
Hvort frystist heitt eða kalt vatn betur?
Gert er ráð fyrir að í upprunalegu spurningunni sé spurt um hvort heitt eða kalt vatn frjósi hraðar. Stutta svarið við þeirri spurningu (að mati höfundar) er nei, heitt vatn frýs ekki hraðar en kalt vatn.
Málið er hins vegar f...
Perlan í Öskjuhlíðinni var vígð 21. júní árið 1991. Ingimundur Sveinsson arkitekt hannaði bygginguna. Tankar Perlunnar eru 6 talsins. Í þremur tankanna er 80°C heitt vatn sem bíður þess að vera sent út í dreifikerfi en í tveimur þeirra er bakrennslisvatn, um 30°C heitt. Í sjötta tankinum var sögusafn frá 2002-2014...
Þurr húð er ekki endilega húðsjúkdómur en ástand húðarinnar einkennist af því að hún flagnar, oft með roða, ertingu og kláða. Þetta veldur mestum vandræðum á haustin og veturna. Húðþurrkur kemur yfirleitt fram í andliti, á höndum, handleggjum og fótum. Þegar verst lætur getur húðin líkst fiskhreistri (Ichtyosis). ...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Komið þið sæl. Geta komið nýjar tegundir af snákum á Íslandi sem eru með heitt blóð? Kv. Mikael, sem hefur mikinn áhuga á snákum.
Þrátt fyrir að ekki sé leyfilegt að flytja snáka til Íslands er ljóst að þeim er af og til smyglað hingað og flestir þeirra eru væntanlega...
Jörðin er sem næst kúlulaga, og geislinn (radíus) er 6370 km, þannig að sú er fjarlægðin niður í miðju hennar. Jarðkjarninn, sem reyndar er stór kúla með um 3470 km geisla, er talinn vera að mestu úr járni og nikkel - þar hafa menn fyrir sér annars vegar eðlismassa (eðlisþyngd) kjarnans, og hins vegar loftsteina s...
Jónas Magnússon fjallar um botnlangann í svari við spurningunni Til hvers er botnlanginn? Þar kemur meðal annars fram að ekki er vitað almennilega hvert hlutverk botnlangans er í mönnum. Sjálfsagt hefur hann haft eitthvert hlutverk áður en nú virðist vera unnt að fjarlægja hann án þess að það hafi nein sýnileg áh...
Járn kemur fyrir í jörðinni með tvennum hætti, sem málmur (Fe) og í efnasamböndum (til dæmis oxíðið magnetít: Fe3O4 og silíkatíð ólivín: (Fe,Mg)2SiO4). Því má skilja spurninguna tvennum hætti: Að spurt sé um járnmálm (sem er 32% af massa jarðar) eða allt járn, bundið og óbundið (sem er um 39%). Skoðum hvort tveggj...
Silfurskottur (Lepisma saccharina) finnast í húsum hér á landi.
Silfurskottan telst til kögurskottanna (Thysanura) sem taldar eru einn af elstu og frumstæðustu ættbálkum skordýra. Silfurskottur eru stór skordýr á íslenskan mælikvarða því að fullorðin dýr geta orðið rúmur sentímetri á lengd. Þær eru vængjalausa...
Í Gylfaginningu segir: Körmt og Örmt
og Kerlaugar tvær,
þær skal Þór vaða
dag hvern
er hann dæma fer
að aski Yggdrasils,
því að Ásbrú
brenn öll loga,
heilug vötn hlóa.
Helst er giskað á að hlóa þýði að eitthvað sjóði eða sé heitt en ‛vötn hlóa’ kemur fyrir ...
Efnasamsetning gosefna er gjarnan notuð til að flokka bergkvikuna sem kemur upp í eldgosum og gosbergið sem til verður þegar hún storknar á yfirborð jarðar. Þannig er talað um basíska, ísúra eða súra kviku og/eða storkuberg. Ræður þar mestu kísilsýrumagn kvikunnar eða bergsins, sem er lægst í basísku bergi og hæst...
Efnið sem kemur upp í eldgosum er misheitt og ræður þar miklu hver samsetning þess er. Kvikan sem kemur upp er gjarnan flokkuð eftir því hversu mikið kísilsýrumagn hún inniheldur.
Heitasta kvikan er basísk kvika en hún inniheldur minnst af kísilsýru. Basalthraun, algengasta tegund hrauna á Íslandi, eru einmitt...
Þetta er eðlileg spurning frá 9 ára spyrjanda sem er trúlega að velta ýmsum hlutum fyrir sér.
Svarið er að þetta felst í merkingu orðanna sem menn hafa valið að hafa um þessa hluti. Fljótandi vatn er blautt af sömu ástæðu og sykurinn er sætur, saltið er salt á bragðið og piparsveinar eru ógiftir. Þetta sést kan...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!